Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Gæsluvarðhaldi hafnað og konunum sleppt

Héraðsdómur hafnaði síðdegis kröfu lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilis í Vestmannaeyjum vegna rannsóknar á andláti. Heimildir fréttastofu herma að tvær íslenskar konur hafi verið handteknar í tengslum við rannsókn málsins í gær. Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn, staðfestir að þeim hefur nú verið sleppt eftir niðurstöðu héraðsdóms. Til skoðunar er að kæra þá niðurstöðu til Landsréttar.Hin látna var kona á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu var fjölskyldan grunlaus um að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en lögregla hafði samband.
Gæsluvarðhaldi hafnað og konunum sleppt

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta