Íranskir sjóliðar um borð í sex vélbyssubúnum hraðbátum reyndu í morgun að stöðva danskt olíuflutningskip, sem siglt er undir bandarískum fána, á Hormuz-sundi í Persaflóa. Stjórnendur skipsins juku hraða þess og komust þannig undan þegar írönsku sjóliðarnir skipuðu þeim að stöðva skipið. Seinna í dag var olíuflutningaskipinu svo fylgt eftir af bandarísku herskipi.