Skæð fuglainflúensa greindist í hræjum tveggja fugla á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tilkynningar almennings skipta Matvælastofnun miklu máli til að hægt sé að senda fugla í rannsókn, segir Þóra Jóhanna Jónasdóttir yfirdýralæknir hjá stofnuninni.„Við óskum eftir að almenningur tilkynni til Matvælastofnunar um veika og dauða fugla. Einnig ef þau finna villt spendýr og þá kannski sérstaklega rándýr sem líta út fyrir að vera veik eða eru dauð.“Dæmi voru um að rándýr sem átu dauða fugla veiktust af fuglainflúensu í fyrra. Hægt er að senda inn ábendingar á vef Matvælastofnunar. Þeim þarf að fylgja greinargóð lýsing á fundarstað ásamt hnitum og myndum ef möguleiki er á. ÓVÍST HVE ÚTBREIDD INFLÚENSAN ER Tvö hræ sem greind voru á meinafræðistöð Háskóla Íslands að Keldum í gær reyndust sýkt af H5N1-