Stjórnarandstöðuflokkurinn Tisza mælist með mest fylgi í skoðanakönnunum í Ungverjalandi, langt umfram Fidezs, flokk Viktors Orban forsætisráðherra. Í könnun sem birtist í ungverskum fjölmiðlum í dag mælist Tisza með fimmtíu og þriggja prósenta fylgi meðal þeirra sem taka afstöðu, og Fidesz með þrjátíu og fimm prósent, en mjög margir eru enn óákveðnir.Aðeins einn annar flokkur mælist inni á þingi í könnuninni, yfir fimm prósenta fylgi, en það er þjóðernissinnaflokkurinn Mi Hazánk, sem útleggst Föðurland okkar.Kosið verður til þings í Ungverjalandi tólfta apríl.Orban og Fidesz hafa farið með völd í landinu frá árinu 2010. Peter Magyar, fyrrverandi framámaður í Fidezs, fer fyrir Tisza og lofar að uppræta spillingu og bæta samskipti við Evrópusambandið og NATO, en Orban hefur oft reynst banda