Full samstaða var um nýja öryggis- og varnarstefnu þegar greidd voru atkvæði um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra í dag.Hin nýsamþykkta stefna á sér töluvert langan aðdraganda. Þingsályktunin er byggð á skýrslu þverpólitísks stýrihóps sem utanríkisráðherra skipaði í fyrra og kynnt var í september.Það gekk þó ekki þrautalaust að ná þeirri samstöðu sem birtist í þingsal í dag því fulltrúi Miðflokksins sagði sig úr starfshópnum í sumar. Það var ekki fyrr en málið kom til kasta utanríkismálanefndar að Miðflokkurinn ákvað að styðja tillöguna, eftir að orðalagi er við kom Evrópusambandinu var breytt.Mikill samhljómur var á meðal ræðumanna við atkvæðagreiðslurnar og gengu hrós á víxl, þvert á flokka.Samkvæmt stefnunni verða meginstoðir í öryggi landsins sem fyrr aðild Íslands að NATO og var