Um næstu mánaðamót hækkar Pósturinn verðskrá sína verulega. Eymar Pledel Jónsson, framkvæmdastjóri viðskiptavinasviðs, segir verðhækkanirnar koma til vegna breytinga á alþjóðlegu regluverki, verðlagsþróunar og fækkunar á bréfsendingum.Ný verðskrá tekur gildi 1. mars og með henni hækkar verð fyrir pakka innanlands, tollatengd gjöld, rúmfrek bréf, smápakka og bréf til útlanda. Verðið hækkar mest fyrir smápakka til útlanda, verð á eins til tveggja kílóa pökkum til Evrópu rúmlega tvöfaldast og fyrir jafn þunga pakka út fyrir Evrópu hækkar verð um allt að 180%.Eymar segir verðhækkun á pakkasendingum til útlanda fyrst og fremst koma til vegna reglugerðarbreytingar hjá Alþjóðapóstsambandinu.„Reglugerðarbreytingin snérist um að það er ekkert lengur í boði og má ekkert lengur senda vörusendingar í