Starfsfólks bráðmóttöku Landspítalans hefur verið útsett fyrir berklum, samkvæmt heimildum fréttastofu. Mbl.is greindi fyrst frá og staðhæfir að minnst átta starfsmenn séu smitaðir. Þar af læknir, hjúkrunarfræðingur og mótttökuritari.Þar kemur einnig fram að talið sé að sýkinguna megi rekja til gistiskýlis hjá Reykjavíkurborg.Fréttastofa greindi frá því í fyrra að berklar hefðu greinst í gistiskýlum á vegum borgarinnar. Berklateymi var þá sett á laggirnar, skima þurfti tugi og var verkefnið mjög umfangsmikið. > @ruvfrettir Replying to @Hemmigull ♬ original sound - RÚV - fréttir