Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð út síðdegis í dag til að aðstoða við lögregluaðgerð á Selfossi. Í tilkynningu lögreglunnar á Suðurlandi segir að hún hafi verið kölluð út vegna slagsmála, þar sem mögulegt var að vopn væru notuð. Vegna þess var sérsveitin einnig kölluð til.Einn var handtekinn í aðgerðinni og er málið í rannsókn.Fréttin var uppfærð eftir tilkynningu lögreglu.Myndin er úr safni.RÚV / Ragnar Visage