„Minjastofnun hefur bent á að á reitnum sé gott tækifæri fyrir hið opinbera að sýna fordæmi í verki og leggja ekki aðeins áherslu á byggingarmagn, heldur reyna að draga fram önnur gæði og verðmæti,” segir Henný Hafsteinsdóttir minjavörður Reykjavíkur um byggingaráform ríkisins við Borgartúni 5.Reiturinn er oftast kenndur við Vegagerðina enda byggði hún þar lágreistar iðnaðarbyggingar um síðustu öld (1943-1950) og svo aftur nýrri byggingu árið 1997. Síðastliðnar vikur hefur Víðsjá á Rás 1 ferðast um borgarlandslagið með Henný Hafsteinsdóttur minjaverði Reykjavíkur og skoðað byggingar sem gætu verið á leið í niðurrif, samkvæmt núgildandi borgarskipulagi.Í samtali við Víðsjá á Rás 1 segir Henný meðal annars frá sögu svæðisins og þeim byggingum sem henni finnst að ætti að rannsaka betur til e