Frá og með 1. maí næstkomandi munu börn á grunnskólaaldri í Reykjavík ekki þurfa að greiða fargjald í Strætó, nái áform borgarstjórnar fram að ganga. Tillaga meirihlutans í Reykjavík þess efnis var samþykkt á borgarstjórnarfundi í dag. Markmiðið er að með þessu verði aðgengi barna og ungmenna að almenningssamgöngum bætt og þannig hægt að draga úr foreldraskutli í skóla-, íþróttir- og frístund og um leið draga úr umferðarþunga.