Það vakti talsverða athygli og umræður í gær þegar Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra nefndi að fyrsta skref að afnámi verðtryggingar yrði stigið um næstu áramót. Í Þetta helst í dag er sjónum beint að vægi verðtryggingar á Íslandi og mögulegum breytingum.Dósent í viðskiptafræði segir það forræðishyggju á hæsta stigi að stjórnvöld setji reglur um lágmarkshraða afborgana fasteignalána. Formaður Félags fasteignasala telur afnám verðtryggingarinnar geta leitt til aukins ójöfnuðar.Í fyrsta húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar, sem kynntur var í lok október á síðasta ári, kom fram að ríkisstjórnin ætlaði að bregðast hratt við stöðunni á lánamarkaði eftir dóm Hæstaréttar í vaxtamálinu svokallaða. Um leið myndi fjármála- og efnahagsráðuneytið vinna og kynna tillögur um að vægi verðtryggðra íbúðal