Í umræðum um störf þingsins, þar sem þingmenn deila hugðarefnum sínum hverju sinni, lýsti Jón fátæklegum tækjakosti í þingsal. Atkvæðahnappar eiga til að bila sem og ljósið í pontu, vanbúið hljóðkerfi verður til þess að umræður eiga það til að fara framhjá honum og þá sé ekki vanþörf á því að koma upp sjónvarpsskjá í þingsal svo að þingmenn átti sig á hvaða mál er verið að ræða hverju sinni.Máli sínu lauk Jón svo með því að vitna til Indriða, persónu sem hann sjálfur gerði ódauðlega í Fóstbræðrum forðum daga, þingheimi til mikillar gleði. Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, tók undir orð þingmannsins, og fór þess á leit við þingmenn að þeir sjái til þess að fjármagna þær úrbætur sem Jón týndi til.