Tveir voru fluttir á slysadeild Heilbrigðisstofnunar Norðurlands eftir að eldur kviknaði í einbýlishúsi við Hlíðarveg á Siglufirði í gær. Slökkviliði Fjallabyggðar var tilkynnt um eldinn síðdegis í gær en heimafólk var búið að slökkva hann þegar slökkviliðsmenn mættu á staðinn. Þeirra beið þó það verkefni að reykræsta húsið og huga að íbúum.Í færslu á vef Slökkviliðs Fjallabyggðar segir að þarna hafi mikilvægi þess að hafa reykskynjara, slökkvitæki og eldvarnateppi sannað sig.Slökkvilið Fjallabyggðar á staðnum.Slökkvilið Fjallabyggðar