Rússland skaut yfir fimm hundruð sprengidrónum og eldflaugum að skotmörkum víða í Úkraínu í nótt, degi fyrir fyrirhugaðar friðarviðræður með milligöngu Bandaríkjanna.Volodymyr Zelensky Úkraínuforseti sagði í morgun að árásirnar hefðu enn og aftur beinst að raforkuinnviðum landsins, einmitt þegar vetrarkuldi syrfi sem fastast að. Í nótt mældist tuttugu stiga frost í höfuðborginni Kænugarði.Orkufyrirtækið DTEK sagði árásina í nótt vera þá umfangsmestu frá áramótum og þær hafi beinst að orkuverum og dreifistöðvum.