Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Harðneitar að borga furðureikning fyrir að aka milljón kílómetra í janúar

Rútubílstjóra á Egilsstöðum brá í brún þegar reikningur fyrir kílómetragjaldi kom í pósthólfið. Hann átti að snara fram næstum tuttugu milljónum fyrir að hafa ekið tæpa milljón kílómetra í janúar. Ef marka má færslur netverja virðist nokkuð um ofáætlaðan akstur. VAR EKKI MEÐ GLERAUGUN „Ég hélt fyrst að þetta væru nítján þúsund, ég var nú ekki með gleraugun fyrir framan tölvuna þegar ég var að skoða þetta. En svo rak ég augun í það að þetta voru 19 milljónir og 683 þúsund með gjalddaga sextánda annan. Og svo fór ég að rýna betur í þetta og þá sé ég að þessi tala er tilkomin vegna þess að bíllinn á að hafa verið keyrður 999.691 kílómetra á einum mánuði,“ segir Hlynur Bragason en hann rekur rútufyrirtækið Sæti og gerir út frá Egilsstöðum.Til að ná að aka næstum milljón kílómetra á einum má
Harðneitar að borga furðureikning fyrir að aka milljón kílómetra í janúar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta