„Ég hef aldrei séð annað eins,“ sagði Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir, fréttakona á RÚV, um ofsafengin viðbrögð við kanadísku þáttunum Heated RivalryÞættirnir fjalla í stuttu máli um forboðna ást tveggja hokkíspilara, sem eru erkióvinir á svellinu. Ingibjörg Sara vinnur nú að fréttaskýringu um þættina fyrir Heimskviður, sem verður á dagskrá Rásar 1 á laugardag. Hlustaðu á spjallið um Heated Rivalry í spilaranum hér fyrir ofan.Ingibjörg Sara sagði að þættirnir séu afar kynþokkafullir, sem heillar eflaust stóran hluta áhorfenda. „Það er eins og það séu einhver fíkniefni í þáttunum. Fólk er bókstaflega að tryllast,“ sagði hún.Morgunútvarpið er á dagskrá Rásar 2 milli klukkan 7 og 9 alla virka morgna.