Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Máttu svipta Guðmund Karl leyfi því áminning hefði ekki skilað árangri

Embætti landlæknis hefði ekki getað tryggt öryggi sjúklinga Guðmundar Karls Snæbjörnssonar og gæði þeirrar heilbrigðisþjónustu sem hann bauð með því að áminna hann. Þetta er mat heilbrigðisráðuneytisins sem staðfesti ákvörðun landlæknis um að svipta Guðmund Karl starfsleyfi sem læknir.Guðmundur Karl var sviptur starfsleyfi í fyrra þar sem hann bauð heilbrigðisþjónustu í fjarþjónustu án staðfestingar landlæknisembættisins um að þjónustan uppfyllti faglegar lágmarkskröfur.Guðmundur Karl tilkynnti embættinu um rekstur þjónustunnar í mars 2023. Embættið svaraði Guðmundi Karli því til að verulega skorti á tilkynninguna, að gögn skorti og að ekki væri búið að staðfesta að fjarfundalausn hans væri tæknilega viðurkennd fyrir fjarheilbrigðisþjónustu.Guðmundur Karl brást ekki við þeim athugasemdum.
Máttu svipta Guðmund Karl leyfi því áminning hefði ekki skilað árangri

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta