Þórður Gunnarsson hagfræðingur segir verðtrygginguna ekki aðalvandamálið. Þegar fólk pirri sig á verðtryggingu sé það í raun að pirra sig á verðbólgunni. Hann segir miklar launahækkanir stærra vandamál. Hann kallar eftir auknu samráði á vinnumarkaði til að finna raunverulegt svigrúm og segir það líklegra til að hafa áhrif á verðbólgu en afnám verðtryggingar.