Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Öldrunarmálaráðherra Danmerkur segir af sér

Mette Kierkgaard, ráðherra öldrunarmála í Danmörku, sagði af sér embætti í morgun.Á Facebook greinir hún frá því að eiginmaður hennar glími við krabbamein og því þurfi hún að beina athygli sinni að fjölskyldunni.Kierkgaard settist á þing fyrir Moderaterne, flokk Lars Løkke Rasmussen utanríkisráðherra, í nóvember árið 2022. Hún hefur gegnt embætti öldrunarmálaráðherra síðan ríkisstjórn var mynduð rúmum mánuði síðar.Henrik Frandsen, þingmaður Moderaterne og fyrrverandi bæjarstjóri, tekur við ráðherraembætti í hennar stað.
Öldrunarmálaráðherra Danmerkur segir af sér

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta