Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Engar tilkynningar borist um veikindi vegna listeríunnar

Reykjavíkurborg hafa ekki borist neinar tilkynningar um veikindi fólks eftir að listería fannst í framleiðslueldhúsi við Vitatorg. Fólk sem fær sendan mat frá borginni var beðið um að hringja í ákveðið númer eða senda tölvupóst ef það veiktist.Í gærkvöld var greint frá því að listería hefði fundist í framleiðslueldhúsi borgarinnar við Vitatorg. Loka átti eldhúsinu í núverandi mynd í maí og færa það. Núverandi húsnæði var metið óviðunandi af Heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur fyrir næstum ári síðan.Listería getur valdið matarsýkingum og eru aldraðir, ófrískar konur, ung börn og fólk með skert ónæmiskerfi líklegri til þess að veikjast. Einkenni geta komið fram allt að þremur vikum eftir neyslu matar. Einkenni geta komið fram allt að þremur vikum eftir neyslu.Um 900 máltíðir úr eldhúsinu fara ý
Engar tilkynningar borist um veikindi vegna listeríunnar

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta