Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Andlátið sem er til rannsóknar bar að í síðustu viku

Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir tveimur sem handteknir voru í gær vegna rannsóknar á andláti á heilbrigðisstofnun í Vestmannaeyjum.Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi, segir ákvörðun verða tekna síðar í dag. Hann segir andlátið hafa orðið í síðustu viku.Mbl.is hefur heimildir fyrir því að hinir handteknu séu starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands.Það hafa hvorki Jón Gunnar né Díana Óskarsdóttir forstjóri stofnunarinnar viljað staðfesta í samtölum við fréttastofu.Díana segir að innan stofnunarinnar sé lögð áhersla á fullt samstarf við lögreglu í rannsókn hennar. Hún geti annars ekkert tjáð sig um málið því mikilvægt sé að virða rannsóknarhagsmuni og réttindi þeirra sem að málinu tengist.
Andlátið sem er til rannsóknar bar að í síðustu viku

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta