Brasilískur maður sem studdi opinberlega herta innflytjendastefnu Donalds Trump Bandaríkjaforseta var handtekinn af innflytjendastofnun Bandaríkjanna, ICE.Júnior Pena er brasilískur áhrifavaldur sem hefur búið í í Bandaríkjunum síðan 2009. Honum hefur verið tíðrætt um stuðning sinn við herta innflytjendastefnu Bandaríkjastjórnar á samfélagsmiðlum, þar sem hann á hundruð þúsunda fylgjenda og segist sýna raunveruleika innflytjenda í Bandaríkjunum.Umfang og störf ICE hafa aukist mikið í stjórnartíð Donalds Trumps, Bandaríkjaforseta, en stofnunin vinnur að brottflutningi ólöglegra innflytjenda frá landinu.Pena birti nýverið færslu þar sem hann hvatti Brasilíumenn í Bandaríkjunum til stillingar því ICE væri aðeins að handtaka svikahrappa, eins og hann orðaði það.Pena var handtekinn í New Jersey