Í dag hefjast réttarhöld í Noregi yfir Mariusi Borg Høiby, syni norsku krónprinsessunnar Mette Marit, en hann sætir ákæru 38 liðum fyrir ýmis brot, meðal annars nauðgun og önnur ofbeldisbrot. Hann neitar sök vegna alvarlegustu ákæruliðanna. Löng biðröð hefur myndast fyrir utan héraðsdóminn í Osló þar sem réttarhöld fara fram en bæði norskir og erlendir fjölmiðlar hafa sýnt málinu mikinn áhuga.