Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Átta vilja efstu sæti Vinstri grænna í sameiginlegu framboði

Átta gefa kost á sér í forvali Vinstri grænna um hver skipa efstu sæti flokksins á sameiginlegum framboðslista með Vori til vinstri. Framboðsfrestur rann út á miðnætti 1. febrúar.Meðal þeirra sem gefa kost á sér eru Líf Magneudóttir borgarfulltrúi og Stefán Pálsson varaborgarfulltrúi, einnig Finnur Ricart Andrason, sem skipaði fyrsta sætið á framboðslista Vinstri grænna í Reykjavík norður fyrir síðustu þingkosningar. Bæði Líf og Finnur hafa tilkynnt að þau stefni á efsta sætið sem kemur í hlut Vinstri grænna.Fulltrúar Vinstri grænna skipa annað, þriðja og sjötta sæti á framboðslistanum. Forvalið fer fram 20. til 22. febrúar. Flokksmenn í Vinstri grænum geta kosið, hægt er að ganga í flokkinn til 10. febrúar hyggist fólk kjósa í forvalinu.
Átta vilja efstu sæti Vinstri grænna í sameiginlegu framboði

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta