Litlar breytingar eru á fylgi stjórnmálaflokkanna milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Gallup. Breytingarnar eru á bilinu 0,1 til 0,8 prósentustig og ekki tölfræðilega marktækar. Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og Miðflokkurinn næststærstur. Meirihluti styður störf ríkisstjórnarinnar.