Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Þarf að vanda umræðu um kynferðisbrot gegn börnum

Undanfarið hafa fréttir af kynferðisbrotum gegn börnum og dómsmálum vegna þeirra verið áberandi. Í nýjum tölum frá lögreglunni kemur fram að í fyrra var tilkynnt um 133 kynferðisbrot gegn börnum og að þeim hafi fjölgað töluvert milli ára. Tilkynningar um barnaníð voru rúmlega helmingi fleiri en síðustu ár þar á undan.Barnahús sinnir börnum sem grunur leikur á að hafi sætt ofbeldi eða kynferðislegri áreitni. Paola Cardenas sálfræðingur og teymisstjóri í Barnahúsi segir að þar verði fjölgunar mála vart, bæði í aukinni eftirspurn eftir þjónustu og í fjölda mála. Hún segir þó að varast verði að túlka tölur um fjölgun bara á neikvæðan hátt, hún geti líka þýtt að börn séu líklegri til að segja frá en áður og að forvarnir séu kannski að skila sér. YNGSTU BÖRNIN UM ÞRIGGJA OG HÁLFS Í Barnahúsi
Þarf að vanda umræðu um kynferðisbrot gegn börnum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta