Nýjasta sýning Borgarleikhússins er barnaleikritið Galdrakarlinn í Oz eftir L. Frank Baum. Þetta er stór sýning með fjölda leikara. Ungir krakkar fá tækifæri til að sýna listir sínar í leik, söng og dansi og eldri leikarar, reynsluboltar í faginu, virðast skemmta sér vel í þessu klassíska verki sem hefur ýmsar tengingar við samtímann. Þetta er ekki uppsetning sem reynir að ögra heldur er skemmtunin í forgrunni og ekki teknir neinir sjensar.