Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Prófa að gera blóðmör úr laxablóði og laxalifur

Eins og staðan er í laxeldi eru á bilinu sex til sjö hundruð tonn af laxablóði sem skolað er út í sjó árlega og eru þar með ekki nýtt. Þarna gætu leynst sóknarfæri sem Rannveig og Sæmundur kanna í samstarfi við fleiri.Hingað til hafa til dæmis verið kannaðir möguleikar á framleiðslu á fæðubótarefni úr laxablóði og í framhaldi af því var farið að skoða aðra vöruþróun. Landinn kíkti í heimsókn þegar verið var að kanna hversu vel myndi heppnast að gera blóðmör úr laxablóði og laxalifur.Útkoman kom rannsakendum skemmtilega á óvart auk þess sem gestir og gangandi í skólanum nældu sér í smakk.Innslagið má sjá í Spilaranum að ofan. Landinn á sunnudögum kl. 19:45.
Prófa að gera blóðmör úr laxablóði og laxalifur

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta