Rúmlega 800 manns hafa skrifað undir lista á Ísland.is þar sem mótmælt er uppbyggingu 160 herbergja hótels á þremur til fjórum hæðum við Laugarvatn. Félagið Bergey stendur að baki verkefninu en það er í eigu fjölskyldu útgerðarmanns sem rak Berg-Huginn í Vestmannaeyjum um áratuga skeið. Sveitarfélagið Bláskógabyggð hefur boðað til íbúafundar á þriðjudagskvöld vegna málsins. „Byggingarnar munu skerða útsýni og...