Austan- og suðaustanáttir blása áfram um landið og eins og undanfarið verður hvassast sunnanlands, allt að fimmtán metrar á sekúndu. Bjartviðri eða þurrt víðast hvar um landið en dálitlar skúrir eða él suðaustan- og austantil.Veðurhorfur á landinu til miðnættis annað kvöld:Austan og suðaustan átta til fimmtán metrar á sekúndu sunnanlands í dag, annars hægari vindur. Dálitlar skúrir eða él suðaustan- og austantil, en bjartviðri á Norður- og Vesturlandi. Hiti frá frostmarki að sjö stigum, en í kringum frostmark fyrir norðan. Kólnar í kvöld.Austan fimm til þrettán á morgun, en þrettán til átján syðst. Víða él, en yfirleitt léttskýjað um landið vestanvert. Hiti um eða undir frostmarki.