Aldrei hafa sjálfboðaliðar og starfsfólk hjálparsíma Rauða krossins tekið á móti fleiri símtölum vegna sjálfsvígshugsana. Sjálfboðaliði segir símtölin oft löng og þung en flest endi vel. Stundum sitji hún þó eftir með hugsanir um hvort hún hafi sagt og gert allt rétt. Sjálfboðaliðar og starfsfólk hafði í 229 tilvikum samband við Neyðarlínuna vegna bráðrar hættu þeirra sem hringdu.