Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Trump lækkar tolla á Indland

Hlutabréf á indverska hlutabréfamarkaðinum hækkuðu skarpt í gær eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti tilkynnti nýjan viðskiptasamning við Indland. Trump hét því að lækka innflutningstolla á vörur frá landinu, gegn því að Indverjar hættu að kaupa olíu frá Rússlandi.Trump hafði áður hótað því að leggja 25% refsiaðgerðatolla á indverskar vörur, til viðbótar við þá 25% tolla sem fyrir voru. Nýi viðskiptasamningurinn gerir ráð fyrir 18% tollum á indverskar vörur.Trump sagði í færslu á samskiptamiðlinum Truth Social að forsætisráðherra Indlands, Narendra Modi, hefði samþykkt að hætta að kaupa olíu frá Rússum og kaupa meiri olíu frá Bandaríkjunum og mögulega Venesúela. Það myndi hjálpa til við að binda enda á stríðið í Úkraínu.Modi hefur ekkert tjáð sig um þessi ummæli Trumps en fagnaði samnin
Trump lækkar tolla á Indland

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta