Yfir fimm milljónum Afghana hefur verið vísað úr landi frá Pakistan og Íran og aftur til heimalandsins síðan í september 2023. Þessi mikli fjöldi samsvarar um 10% af heildarfjölda íbúa í Afganistan.Alþjóðlega fólksflutningastofnunin segir að aðstæður fólksins séu oft og tíðum mjög erfiðar, enda hafi mörg þeirra ekki að neinu að hverfa eftir að hafa verið búsett í öðru landi jafnvel áratugum saman. Um 80% þeirra sem snéru aftur heim til landsins eru ekki enn komin í varanlegt húsnæði og þurfa að búa inni á öðru fólki eða búa í lélegum húsum án vatns og rafmagns.Einstæðar mæður og konur eru í sérlega viðkvæmri stöðu vegna þess hversu erfitt það getur verið fyrir þær að nálgast vatn og ýmsar aðrar nauðsynjar. Á sumum svæðum í Bamian-héraði í miðju landinu er ekkert drykkjarvatn að finna og íb