Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Unglingsdrengur synti í fjóra tíma til að bjarga fjölskyldu sinni

Þrettán ára unglingsdrengur vann einstaka hetjudáð á föstudag þegar hann synti fjóra kílómetra af sjó til lands til að sækja björgunaraðstoð fyrir móður sína og tvö yngri systkini sem höfðu rekið á haf út á kajak og róðrarbrettum út fyrir Quindaloup, á vesturströnd Ástralíu.Það tók drenginn um fjórar klukkustundir að synda til lands og kalla eftir aðstoð. Víðtæk leit úr lofti og á sjó var sett af stað og fundust móðir hans og systkini nokkrum klukkustundum síðar. Mæðginin enn í björgunarvestum sínum þegar þau fundust en hafði rekið alls fjórtán kílómetra frá landi.Drengurinn taldi að hann hefði synt fyrstu tvær stundirnar í björgunarvestinu en losað sig svo við vestið til að geta synt hraðar. Nafn drengsins hefur ekki verið gefið upp en björgunarfólk og lögregla hrósuðu honum í hástert fyr
Unglingsdrengur synti í fjóra tíma til að bjarga fjölskyldu sinni

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta