Mótmælaskilti gegn Bandaríkjunum í Tehran, höfuðborg Írans.EPA / ABEDIN TAHERKENAREHFundur milli samninganefnda Bandaríkjanna og Írans er ráðgerður 6. febrúar í Tyrklandi, samkvæmt heimildarmanni AFP fréttaveitunnar.Nokkur spenna hefur ríkt undanfarið milli stjórnvalda í Washington og Tehran undanfarið eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti hótaði árásum á Íran ef Íranir neita að semja um nýjan kjarnorkusamning fljótlega. Hótanir hafa sömuleiðis borist frá Írönum, sem sögðu að þeir myndu svara öllum árásum Bandaríkjanna af mikilli hörku.Fundurinn í Tyrklandi er að frumkvæði ríkisstjórna Egyptalands, Katars, Tyrklands og Ómans, sem vilja draga úr spennu í Mið-Austurlöndum og miðla málum milli Bandaríkjanna og Írans.