Bill og Hillary Clinton.AP / Jacquelyn MartinBill Clinton, fyrrum forseti Bandaríkjanna, og Hillary Clinton, fyrrum forsetaframbjóðandi og fyrrum utanríkisráðherra, hafa samþykkt að bera vitni í rannsókn bandaríska þingsins á máli Jeffrey Epstein. Ákvörðun þeirra kemur skömmu áður en kjósa átti um það á þinginu, hvort hefja ætti ferli til að ákæra hjónin fyrir vanvirðingu við þingið ef þau myndu ekki hlýða stefnunni um að bera vitni.Talsmaður Bill Clinton, Angel Urena, greindi frá ákvörðun þeirra í færslu á samfélagsmiðlinum X í kvöld. „Fyrrum forsetinn og fyrrum utanríkisráðherrann verða þar. Þau hlakka til að setja gott fordæmi gildi fyrir alla,“ segir í færslunni.