Benedikta Eik Eiríksdóttir, sem leitaði blóðföður síns í 20 ár, segir mun algengara en margir halda að fólk sé rangfeðrað. Eftir að fjölmargir í svipaðri stöðu og hún höfðu samband við hana stofnaði Benedikta samtök fyrir rangfeðrað fólk.„Ég einhvern veginn hefði svo óskað þess að ég hefði á sínum tíma haft einhvern stað til að leita á. En það var aldrei neitt svoleiðis,“ segir Benedikta í þætti Kastljóss í kvöld.Hún stofnaði samtökin Mitt DNA – Samtök rangfeðraðra rétt fyrir áramót. Benedikta segir samtökin vera fyrir fólk sem hafi verið rangfeðrað, sama hvað það ætli að gera í því, og fyrir aðstandendur þeirra. „Því þetta getur verið svo ofboðslega flókið. Og trúðu mér, ég veit það.“Benedikta Eik Eiríksdóttir hefur stofnað samtökin Mitt DNA – Samtök rangfeðraðra. Hún var sjálf rangfeðruð