Hart hefur verið tekist á um drög atvinnuvegaráðherra um lagareldi sem kynnt voru í samráðsgátt fyrir skemmstu. Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi telja frumvarpið vel ígrundað og hafa möguleika á að búa til grundvöll að sjálfbærri verðmætasköpun – en gera þó ýmsar athugasemdir. Landssamband veiðifélaga telur það mikla afturför frá frumvarpi síðustu ríkisstjórnar og ávísun á útdauða villta laxastofnsins.Jón Helgi Björnsson, formaður Landssambands veiðifélaga, segir lögfest bann á sjókvíeldi á ákveðnum verndarsvæðum og 50 þúsund tonna framleiðsluhámark þurfa til að sambandið samþykki frumvarp um lagareldi.Ársframleiðsla síðustu ára hefur verið 50 þúsund tonn en leyfi hefur verið fyrir 100 þúsund tonnum. Helstu athugasemdir sem Landssamband veiðifélaga gerði við frumvarpsdrögin í samráðsgátt