Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Kaldara í Flórída en á Íslandi

Grýlukerti á sítrónutréi í Flórída.AP / Chris O'MearaHiti mældist - 2,7 gráður á celsíus í borginni Okeechobee í Flórída klukkan 7 í morgun að staðartíma. Á sama tíma, eða í hádeginu að staðartíma, var hiti 7,2 gráður í Reykjavík.Ljóst er að kaldara var í sólskinsfylkinu Flórída, þangað sem Íslendingar flykkjast allt árið um kring til að sleikja sólina, en í Reykjavík, borg óttans.Þess má geta að miklar vetrarhörkur hafa gengið yfir suðurríki Bandaríkjanna upp á síðkastið.
Kaldara í Flórída en á Íslandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta