STEF, samtök tón- og textahöfunda á Íslandi, ætlar að byrja að rukka fyrir notkun á tónlist í svokölluðum gufugusum. Gufugusur eru nýjasta æði Íslendinga en þær hafa farið eins og stormsveipur um landið.STEF greindi frá þessu á Facebook síðu sinni í dag. „Eftir skamma leit á netinu koma í ljós rúmlega 20 staðir sem bjóða upp á [gufugusur] gegn gjaldi. Í nær örugglega öllum tilvikum er notast við tónlist og er hún í raun í forgrunni fremur en bakgrunni. Þannig að ljóst er að tónlist gegnir verulegu hlutverki við gusustundir,“ segir í færslu STEF. ORKUGUSA, DANSGUSA OG GUSGUSGUSA „Að mörgu leyti mætti líkja gusum við jógatíma undir leiðsögn kennara. Hver lota er venjulega sett upp með tilteknum lögum og oft hafa gusur tiltekið þema sem tengist tónlistinni, t.d. „djassgusa“, „R&B/soul gusa