Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum

Lögreglan á Suðurlandi hefur handtekið tvo í tengslum við andlát á heilbrigðisstofnun. Þetta staðfestir Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn hjá Lögreglunni á Suðurlandi. Hann segir ekki vitað hversu lengi þeim verður haldið en lögregla hefur heimild til að halda þeim sem handteknir eru í 24 klukkutíma áður en ákvörðun um gæsluvarðhald er tekin.Skýrslur voru teknar af hinum handteknu í dag. Ekki sé hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.MBL.is greindi fyrst frá og segir að samkvæmt sínum heimildum hafi þetta verið starfsmenn Heilbrigðisstofnunar Suðurlands í Vestmannaeyjum og að þeir séu grunaðir um að eiga sök á andlátinu. Þar segir einnig að annar hinna handteknu sé hjúkrunarfræðingur á stofnuninni en rannsóknin beinist að því hvort lyfjagjöf hafi leitt til andláts
Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta