Dómsmálaráðherra boðar auknar aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi í stefnunni Öruggara Ísland sem hún kynnti á fundi í morgun. Aðstoðarsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu fagnar auknum áherslum stjórnvalda í málaflokknum.„Markmiðið er auðvitað, eins og ráðherra kom inn á, að senda skýr skilaboð um það að það er ekki liðið að þú komir hingað til lands til að brjóta af þér heldur hefur það þær afleiðingar að þú ert ekki frjáls ferða þinna og þér verður brottvísað með endurkomubanni og eftir atvikum þá hlýtur þú sekt eða refsidóm fyrir refsiverða háttsemi sem þú hefur framið hér,“ segir Lína Ágústsdóttir, aðstoðarsaksóknari hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.Aðstoðarsaksóknari fagnar auknum áherslum stjórnvalda á aðgerðir gegn skipulagðri brotastarfsemi. Hún vonar að ný ste