Steindór Gestur Guðmundarson, einnig þekktur sem Sdóri, og Helgi Albert Reinharðsson eða Helgi A hafa skapað tónlist saman í rúman áratug en þeir hófu tónlistarferil sinn í rappgrúbbunni Landaboi$. Þeir bjuggu í sömu blokk sem unglingar og hafa allar götur síðan verið óaðskiljanlegir en þetta tvíeyki var að senda frá sér lag og brakandi ferskt tónlistarmyndband.