Rússnesk flóttamannafjölskylda sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi tveimur vikum eftir keisaraskurð verður að óbreyttu send til Rússlands. Króatísk stjórnvöld hafa synjað móðurinni og börnunum um alþjóðlega vernd. Örlög föðurins, sem hefur sætt pólitískum ofsóknum í Rússlandi, eru óljós þar sem fjölskyldunni var sundrað í Króatíu.