Í nýrri samnorrænni könnun á miðlalæsi skera Íslendingar sig úr í fjölmiðla- og samfélagsmiðlanotkun. Skilningur á almennu lagaumhverfi og ritstjórn fjölmiðla er hins vegar minni en á hinum Norðurlöndunum.Spurningakönnun var lögð fyrir á sama tíma á Íslandi, Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi. Markmið rannsóknarinnar var að kanna viðhorf, þekkingu og notkun á fjölmiðlum og samfélagsmiðlum og einnig var gervigreindarnotkun könnuð. Þetta er í fyrsta skipti sem sambærileg rannsókn er framkvæmd samtímis á Norðurlöndunum. ÍSLENDINGAR HAFI MEIRI AÐGANG AÐ FRÉTTUM Niðurstöður rannsóknarinnar sýndu að Íslendingar skera sig úr varðandi Facebook og Messenger notkun, samfélagsmiðlarnir WhatsApp og X eru minnst notaðir hérlendis.Fjölmiðlaumhverfið á Íslandi er nokkuð frábrugðið Norðurlöndunum: