Meirihluti þingmanna samþykkti síðdegis frumvarp dómsmálaráðherra um sameiningu sýslumannsembætta. Það felur meðal annars í sér að landið verður eitt sýslumannsumdæmi og að sýslumönnum fækkar úr níu í einn.Þingmenn Framsóknarflokks og Miðflokks greiddu atkvæði gegn frumvarpinu og vísuðu þar til byggðasjónarmiða, en þeir óttast að breytingarnar feli í sér að störf flytjast af landsbyggðinni til höfuðborgarsvæðisins. Sjálfstæðisflokkurinn sat hjá, þingmenn hans eru í grundvallaratriðum sammála markmiðum frumvarpsins en eru ósáttir við útfærsluna. Vísuðu þeir meðal annars í byggðasjónamið og að ekki sé gerð krafa um að sýslumaður sé lögfræðimenntaður.Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, dómsmálaráðherra, sagði við atkvæðagreiðsluna að við sameininguna fækki ríkisstofnunum um fimm prósent. Hún t