Masoud Pezeshkian, forseti Írans, hefur fyrirskipað að hefja skuli kjarnorkuviðræður við Bandaríkin. Frá þessu er greint í írönskum fjölmiðlum.Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur sagst vongóður um að samningur náist svo Bandaríkin þurfi ekki að grípa til hernaðaríhlutunar. Trump hefur hótað hernaðaríhlutun í kjölfar harðra aðgerða íranskra stjórnvalda gegn mótmælendum þar í landi.Bandaríski miðillinn Axios hermir að erindreki Bandaríkjanna fari á fund Abbas Araghchi, utanríkisráðherra Írans, á föstudag til að ræða möguleika á kjarnorkusamningi.Masoud Pezeshkian, forseti Írans.EPA-EFE / AHMED JALIL / POOL