Litlar sem engar breytingar urðu á fylgi flokka á milli mánaða í Þjóðarpúlsi Gallup. Ríkisstjórnin heldur því enn velli en þó með minnsta mögulega meirihluta.Flestar breytingar eru innan við 1% og segir Gallup því breytingarnar ekki tölfræðilega marktækar.Samfylkingin er áfram stærsti flokkurinn og mælist með 31,2% stuðning og fengi þannig 22 þingmenn ef þetta yrðu niðurstöður kosninga. Þar á eftir kemur Miðflokkurinn með 20,8% stuðning og fengi flokkurinn alls 15 þingmenn. Sjálfstæðisflokkurinn er þriðji stærsti flokkur landsins og mælist með 17,1% og fengi þannig 12 þingmenn. ÞJÓÐARPÚLS GALLUP FEBRÚAR 2026 Fleiri kannanir og greiningar má finna á ruv.is/kosningar. FRAMSÓKN EKKI MEÐ MANN INNI Í SUÐURKJÖRDÆMI Ef litið er til kjördæma má tiltaka að Framsóknarflokkurinn mælist með 7,5