Ólöf Arnalds er klassískt menntuð söngkona og fiðluleikari, sem hefur starfað í jaðar- og popptónlist síðan upp úr 2000 þegar hún spilaði með MÚM í nokkur ár. Fyrsta sólóplata hennar Við og Við kom út 2007, Innundir skinni árið 2010, Sudden Elevation 2013, Palme 2014 og loks Spíra í byrjun desember í fyrra.Spíra markar endurkomu hennar að einfaldari og nánari lagasmíðum, eftir nokkur ár þar sem hún sinnti öðrum verkefnum samhliða tónlist. Spíra er öll á íslensku, lágstemmd með fáum hljóðfærum og að mestu tekin upp í einni töku. Hún var hljóðrituð í Sundlauginni með framleiðandanum Skúla Sverrissyni sem spilaði einnig á bassa og gítar en Davíð Þór Jónsson spilar á píanó og gítar.Ólöf Arnalds mætti í hljóðstofu til Atla Más Steinarssonar og ræddi ferilinn og sína fimmtu breiðskífu Spíru.