Allt
Innlent
Erlent
Viðskipti
Íþróttir

Bílaleigur bættu verulega við flotana áður en vörugjöld hækkuðu

963 bílaleigubílar voru nýskráðir í janúar, það er rúmlega sexföldun miðað við sama mánuð í fyrra. Í tilkynningu Bílgreinasambandsins segir að skýringin sé mikil aukning á innflutningi bíla fyrir áramót, áður en vörugjöld voru hækkuð. Búast megi við því að hluti nýskráninga á fyrri hluta ársins verði tilkominn vegna bíla sem fluttir voru inn fyrir áramót.„Það er líklegt að aukning nýskráninga í janúar endurspegli að stórum hluta þessa þróun, þ.e. komi til vegna aukins innflutnings á síðasta ári fremur en hún sé merki um verulega aukningu í eftirspurn ökutækjaleiga svo snemma á árinu,“ segir í tilkynningunni.Nýskráningar fólksbíla voru alls 1.385 í janúar, rúmlega tvöfalt fleiri en í sama mánuði í fyrra. Einstaklingar nýskráðu 293 bíla, sem er 10% fækkun, og fyrirtæki, önnur en bílaleigur,
Bílaleigur bættu verulega við flotana áður en vörugjöld hækkuðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta